Hvað er LifeTrack?
LifeTrack er íslenskt app sem gerir þér kleift að fylgjast með næringu í réttum hlutföllum kolvetna, fitu og próteina (macros) á einfaldan hátt, án þess að þurfa að vigta matinn. Rétt hlutföll næringarefna stuðla að jafnvægi í efnaskiptum, bæta vöðvauppbyggingu og viðhalda stöðugu orkustigi, sem leiðir til bættrar heilsu og frammistöðu.
Hreyfing, jákvætt hugarfar og góður svefn eru lykilþættir í bættri heilsu. Í appinu finnur þú myndbönd með styrktar- og jógaæfingum sem þú getur gert hvar sem er, hugleiðsluæfingar og sögur sem aðstoða þig við slökun og leiða þig í svefn. Einnig er í appinu hvatningarmolar, dagbók og dagleg verkefni til að styðja þig á þinni vegferð.
Er LifeTrack appið fyrir mig?
LifeTrack appið er fyrir þau sem vilja bæta lífsstíl og ná markmiðum sínum í heilsueflingu.
Það hentar sérstaklega vel fyrir:
- Þau sem vilja léttast eða viðhalda kjörþyngd.
- Íþróttafólk og þá sem stunda reglulega hreyfingu til að hámarka afköst og endurheimt.
- Þau sem þurfa að huga að sérstöku mataræði vegna næringarþarfa eða heilsufarsvandamála.
- Fólk sem vill auka meðvitund um rétta næringu og heilbrigðan lífsstíl.
Næringarhluti LifeTrack hentar ekki endilega öllum, þar sem ekki er víst að öll séu tilbúin til þess að fylgjast nákvæmlega með mataræði sínu.